Á 17. júní hlotnaðist Jóni Ólafi Jónssyni varaformanni FEBS sá heiður að draga þjóðfánann að húni í Skrúðgarði Reykjanesbæjar. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri flutti honum þakkarorð og Karlakór Suðurnesja söng Þjóðsönginn. Jón Ólafur hefur tvisvar verið heiðraður af íþróttarhreyfingunni. FEBS óskar honum hjartanlega til hamingju með þennan heiður.